Hlustun A


👨 Gunnar: Sunna! Hver er uppáhalds árstíðin þín? 👉 Sunna! Mùa yêu thích của bạn là gì?

👩 Sunna: Það er haustið því ég á afmæli í september og þá eru líka svo flottir litir á trjánum. 👉 Là mùa thu vì mình sinh nhật vào tháng Chín, và khi đó lá cây có màu rất đẹp.

👩 Sunna: En hvað finnst ykkur? 👉 Còn các bạn thì sao?

👨 Gunnar: Ég elska vorið þegar fer að hlýna. Þá klárast líka skólinn og ég get verið meira með vinum mínum.

👉 Mình yêu mùa xuân khi thời tiết bắt đầu ấm lên. Lúc đó cũng hết học và mình có thể ở bên bạn bè nhiều hơn.

👩 Sunna: Já en mér finnst líka gaman á haustin af því að þá er ekki of heitt og ekki heldur of kalt. 👉 Ừ, nhưng mình cũng thích mùa thu vì khi đó không quá nóng cũng không quá lạnh.

👨 Gunnar: Sunna! Við búum á Íslandi – það er aldrei of heitt, ha ha ha.

👉 Sunna! Mình đang sống ở Iceland mà – làm gì có lúc nào quá nóng đâu, haha.


1. Hver er uppáhalds árstíð Gunnars?

a. Haustið

b. Vorið ✅

c. Veturinn

2. Hvers vegna elskar Gunnar vorið?

a. Af því að þá er hann í fríi frá skóla ✅

b. Af því að það er mikið sólskin

c. Af því að hann getur verið meira með vinum sínum ✅

3. Hvaða árstíð finnst Sunnu best?

a. Haustið ✅

b. Vorið

c. Sumarið


4. Af hverju finnst Sunnu haustið skemmtilegt?

a. Hún fer í útilegu á haustin

b. Hún á afmæli í september ✅

c. Litirnir á trjánum eru fallegir ✅

5. Hvað segir Gunnar um hitann á Íslandi?

a. Það er oft of heitt

b. Það er aldrei of heitt ✅

c. Það er alltaf kalt á vorin

6. Hvers vegna finnst Sunnu haustið gott?

a. Það er ekki of heitt ✅

b. Hún elskar að borða epli

c. Það er ekki of kalt ✅

Tiếng Băng Đảo Nền Tảng dành cho người Việt